Umhverfis- og öryggismál
Umhverfis- heilsu- og öryggismál snerta ávallt hjarta starfseminnar.
Vegna eðlis starfsemi Olíudreifingar ehf eru umhverfis- og öryggismál samofin öllum þáttum starfsemi félagsins. Hvort heldur það er meðhöndlun, geymsla eða flutningar á eldsneyti, viðhald og nýbyggingar á birgðastöðvum, bensínstöðvum eða á starfsstöðvum hjá viðskiptavinum móðurfélaga okkar. Einnig er fylgt ströngum reglum um rekstur og viðhald á skiptastóli félagsins.
Félagið hefur byggt upp lýsingar á þeim verkferlum sem mikilvægastir eru í því að tryggja öryggi og geta valdið hvað mestu tjóni. Þar er að sjálfsögðu lögð mest áhersla á verndun lífs, lima og heilsu en þar skammt á eftir kemur virðingin fyrir umhverfinu, enda er náttúran það sem við byggjum allt okkar á og komum til með að gera um ókomna framtíð. Það er því stefna Olíudreifingar að skilja ekki verr við umhverfið en við tökum við því hverju sinni. Verkferlarnir og lýsingarnar á þeim eru rýndir reglulega samkvæmt þeim stöðlum sem þeir eiga að uppfylla, þeir endurnýjaðir eða beiting þeirra skerpt eftir því sem ástæða þykir til hverju sinni.
Annar mikilvægur þáttur í starfseminni eru ábyrg og skilvirk viðbrögð við óhöppum hvers konar er upp kunna að koma. Olíudreifing ehf hefur komið sér upp viðbragðsáætlunum til að bregðast við þeim óhöppum sem hent geta í rekstrinum og fyrirsjáanleg eru. Starfsmenn eru þjálfaðir í viðbrögðum við óhöppum samkvæmt viðbragðsáætlun. Búnaður til að bregðast við óhöppum hefur verið keyptur og starfsmenn þjálfaðir í notkun hans.
Öryggisnefnd Olíudreifingar hefur yfirumsjón með þessum málaflokkum, en hver einasti starfsmaður er lykilmaður í að stafsemin gangi óhappalaust fyrir sig.
Í Öryggisnefnd Olíudreifingar eru:
Vinnusími | GSM | |
Gestur Guðjónsson Jón Haraldsson Birgir Björnsson Grétar Mar Steinarsson Helgi Marcher Egonsson Jónas Kristinsson | 550 9943 550 9945 550 9946 550 9905 550 9937 550 9964 | 898 4712 664 0366 825 3432 898 4710 860 6944 897 7706 |
Ef þú ert með spurningar, sendu þá tölvupóst á odr@odr.is