Þjónustuverkstæði
Þjónustuverkstæði Olíudreifingar eru tæknilega vel búin og mönnuð sérfræðingum og starfsfólki með iðnmenntun, ásamt aðstoðarfólki.

Þekking og reynsla
Olíudreifing býr að víðtækri þekkingu og reynslu starfsfólks sem kemur sér vel þegar ólík og krefjandi verkefni koma inn á borð þjónustuverkstæða okkar. Á verkstæðunum starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga, iðnaðarmanna og aðstoðarfólks, að stærstum hluta með sveins- eða meistararéttindi.
Verðlagning þjónustunnar er þrenns konar:
- Föst verð í verk
- Þjónustusamningar
- Tímavinna
Starfandi fagaðilar
- Rafvirkjar
- Rafeindavirkjar
- Rennismiðir
- Bifvélavirkjar
- Vélvirkjar
- Plötusmiðir
- Píparar
- Rafsuða
Verkefni
- Tankasmíði, niðursetning og frágangur
- Uppsetning og viðhald á myndavélakerfum
- Varaaflsstöðvar
- Viðbragðshópur í öryggis- og umhverfismálum
- Þjónusta við afgreiðslubúnað fyrir metangas
- Bílalyftur, uppsetning og þjónusta
- Almenn ál- og stálsmíði
- Raflagnir og töflusmíði
- Bifreiðaviðgerðir
- Pípulagnir
- Eldsneytislagnir og gaslagnir
- Uppsetning og þjónusta við afgreiðslubúnað
- Viðgerðir á mælum, dælum og sjálfsölum
- Bílaþvottavélar, uppsetning og þjónusta