Mannauðsstefna
Markmið Olíudreifingar er að hjá fyrirtækinu starfi hæft og traust starfsfólk sem eflist og styrkist með félaginu. Olíudreifing ehf sækist eftir starfsfólki sem starfar að heilindum og býr yfir þekkingu, samviskusemi og reynslu, en býður jafnframt velkomið til starfa ungt fólk sem tilbúið er að takast á við krefjandi verkefni fyrir félagið. Á móti býður Olíudreifing starfsmönnum öruggt starfsumhverfi sem starfar eftir ströngum reglum og fyrirtækið einsetur sér að hafa alltaf yfir að ráða viðurkennd verkfæri og búnað. Markmið Olíudreifingar er að veita skjóta og góða þjónustu þar sem viðskiptavinurinn er í öndvegi en um leið leggur fyrirtækið metnað sinn í að hlíta í hvívetna þeim kröfum í umhverfis- og öryggismálum sem fyrirtækið hefur sett sér.

Spurt og svarað
Starfsánægja og vellíðan
Olíudreifing leggur mikið upp úr starfsánægju, góðum starfsanda og vellíðan starfsmanna á vinnustað. Áhersla er lögð á opin skoðanaskipti og góða miðlun upplýsinga.
Starfsmenn eru hvattir til að tjá sig um það sem þeim finnst miður fara á vinnustað. Allir eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu. Virðing er lykillinn að samstilltum vinnustað þar sem réttindi og tillitssemi starfsmanna eru í hávegum höfð og hvorki liðnar ógnanir né þvinganir.
Eftir því sem unnt er reynir Olíudreifing að taka tillit til persónulegra aðstæðna starfsmanna. Það er því krafa Olíudreifingar til allra starfsmanna að þeir sýni hvor öðrum, yfirmönnum jafnt sem undirmönnum , umhverfinu og eignum fyrirtækisins fyllstu virðingu.
Símenntun
Olíudreifing leggur áherslu á að efla hæfni starfsmanna og að þeir nýti hæfileika sína í starfi. Starfsmönnum bjóðast ýmsir möguleikar til fræðslu og starfsþróunar, utan vinnutíma sem innan. Starfsþróun er sameiginlegt verkefni starfsmanna og Olíudreifingar. Fræðslustarfið á að skila hæfari starfsmönnum og einstaklingum.
Jafnrétti
Starfsmenn eru metnir á eigin forsendum og fyllsta jafnræðis gætt milli starfsmanna. Öll störf innan Olíudreifingar standa jafnt konum sem körlum til boða. Starfsmenn eru hvattir til að kynna sér jafnréttisáætlun Olíudreifingar sem er að finna hér neðar á síðunni.
Kynferðisleg áreitni
Kynferðisleg áreitni hverju nafni sem nefnist líðst ekki hjá Olíudreifingu. Til kynferðislegrar áreitni telst t.d. kynferðisleg umleitan sem ekki er óskað eftir, kynferðislegir brandarar, kynferðislegar dylgjur og ósæmileg tilboð.
Einelti
Einelti getur birst í mörgum myndum og gera menn sér ekki alltaf grein fyrir því að þeir séu þátttakendur í þeim leik enda er hann oft saklaus í byrjun samanber stríðni.
Ekki þarf að fjölyrða um líðan þess einstaklings sem fyrir einelti verður og eru allir hvattir til að upplýsa um það án tafar ef að þeir telja sig verða fyrir slíku ofbeldi eða eru vitni að því að aðrir eru beittir slíkum órétti.
Einelti verður ekki liðið innan Olíudreifingar enda ofbeldi og refsivert athæfi.
Áfengis- og eiturlyfjastefna
Olíudreifing ehf. er leiðandi fyrirtæki í olíudreifingu á Íslandi og lítur því á það sem skyldu sína að haga vinnubrögðum sínum á þann hátt að fyllsta öryggis sé gætt.
Vegna hinnar miklu ábyrgðar sem stafar af áhættu þeirra verka sem starfsmenn inna af hendi er afar mikilvægt að þeir séu undir það búnir og dómgreind þeirra sé að öllu leyti óskert.
Starfsmönnum er með öllu óheimilt að neyta eða vera undir áhrifum áfengis eða vímuefna við störf sín. Áhafnarmeðlimum skipa er óheimilt að neyta áfengis 24 klst. áður en þeir koma um borð.
Notkun lyfseðilsskyldra lyfja annarra en þeirra sem gefin eru út af lækni er óheimil.
Starfsmaður skal gera yfirmanni sínum viðvart ef hann er á lyfjum sem sljóvgað geta dómgreind hans og einbeitingu og skal yfirmaður þá velja honum verkefni í samræmi við það.
Þurfi áhafnarmeðlimir skipa á lyfi úr lyfjakistu viðkomandi skipsins að halda, skal það gert í samráði við skipstjóra og skal það skráð í lyfjadagbók.
Starfsmenn í lykilstöðum og þeir sem gegna sérstaklega hættulegum störfum, þar á meðal skipstjórnendur og yfirmenn fyrirtækisins skulu prófaðir árlega hið minnsta í óviðbúnum áfengis- og eiturlyfjaprófum og aðrir starfsmenn með reglubundnum hætti samkvæmt handahófsúrtaki. Ekki mega finnast nein spor af ólöglegum fíkniefnum í sýnum og einungis það magn lyfseðilsskyldra lyfja sem eðlilegt má ætla að sé í blóði skv gildum lyfseðli sem gefinn hefur verið út til viðkomandi og má áfengismagn í blóði ekki vera meira en 0,40 prómill.
Olíudreifing ehf leggur sitt af mörkum til að starfsmenn sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að etja, fái þá aðstoð sem möguleg er til að takast á við vanda sinn.
Viðurlög við brotum á áfengis og vímuefnastefnu félagsins er brottrekstur.
Ef þú ert með spurningar, sendu þá tölvupóst á odr@odr.is.
Jafnréttisáætlun
Orðið jafnrétti felur m.a. í sér að allir starfsmenn eigi að sitja við sama borð óháð kyni, kynhneigð, kynvitund, kynþætti, trú, aldri eða búsetu. Tilgangurinn með sérstakri áætlun er fyrst og fremst sá að tryggt sé að hæfileikar og færni allra fái notið sín. En til þess að áætlunin þjóni tilgangi sínum þarf að setja fram mælanleg og tímasett markmið eða aðgerðarplan.
Í Jafnréttisáætlun Olíudreifingar ehf. er fyrst og fremst verið að vinna með jafnrétti kynjanna í anda laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Rétt er að geta þess að einungis um 9% starfsmanna Olíudreifingar eru konur og þar af tvær konur af erlendum uppruna. Ef í ljós kemur að það halli á annað hvort kynið þarf að grípa inní og finna leiðir til að rétta hlut þess sem höllum fæti stendur.
Jafnréttisáætlun Olíudreifingar er kynnt öllum starfsmönnum í Starfsmannahandbók sem er árlega uppfærð og öllum aðgengileg m.a. á heimasíðu félagsins. Jafnframt fá allir nýir starfsmenn sérstaka kynningu á grunn stefnum félagsins þar á meðal jafnréttisstefnunni.
Fyrsta jafnréttisáætlun Olíudreifingar tók gildi á haustmánuðum 2004 og því hefur sérstök áhersla á jafnrétti verið samofið starfi Olíudreifingar í 15 ár. Jafnréttisáætlunin og sérstök aðgerðaáætlun er uppfærð og yfirfarin með reglulegu millibili. Framkvæmdastjóri ber alltaf endanlega ábyrgð á jafnréttisáætluninni en felur forstöðumönnum eða öðrum starfsmönnum afmörkuð verkefni eða verkþætti. Jafnréttisáætlun Olíudreifingar er hluti af mannauðsstefnu félagsins.
Kynjaskipting starfsmanna
Olíudreifing er karllægur vinnustaður. Í gegnum árin hefur mikill meirihluti starfsmanna verðir karlar þó svo að í mörg ár hafi verið lögð sérstök áherlsa á að fjölga konum. Árlega er farið yfir starfsmannalista og reiknuð út skipting starfsmanna eftir kyni – í heild og innan hvers starfssviðs fyrir sig. Einnig er reiknað út hlutfall starfsmanna af erlendum uppruna. Þar sem það hallar verulega á konur á nær öllum starfssviðum, nema á skrifstofu, er það haft að leiðarljósi við mannaráðningar og reynt að rétta kynjahallann. Ef jafnhæfir einstaklingar sækja um auglýst starf ber að ráða það kynið sem hallar á.
Þau starfssvið eða hópar sem þarf að skoða eru
- Forstöðumenn.
- Deildar-, stöðva- og verkefnastjórar.
- Iðnaðarmenn.
- Bifreiðastjórar
- Starfsfólk á skrifstofu.
- Aðrir starfsmenn.
Auglýsing starfa
Í starfsauglýsingum frá Olíudreifingu kemur fram að auglýst starf henti jafnt konum sem körlum enda er það í anda jafnréttislaga. Það er óheimilt að auglýsa starf þar sem fram kemur að atvinnurekandi óski frekar eftir öðru kyninu en hinu. Á þessu er þó undantekning því ef Olíudreifing vill stuðla að jafnari kynjaskiptingu meðal starfsmanna í einstökum störfum er bæði æskilegt og heimilt að hvetja annað kynið sérstaklega til að sækja um viðkomandi starf. Það þarf þá að koma fram í auglýsingunni að markmiðið sé að jafna hlut kynjanna.
Laun, hlunnindi og framgangur í starfi
Í lögunum er kveðið á um launajafnrétti og að kynin skulu njóta sömu kjara fyrir jafn verðmæt og sambærileg störf. Eins ber fyrirtækjum eins og Olíudreifingu skylda til að fá formlega jafnlaunavottun. Sú vinna og rýni sem fer fram innan fyrirtækisins í vottunarferlingu er mjög gagnleg og gefur góða sýn á launagreiðslur og hlunnindi starfsfólks m.a. eftir kyni. Olíudreifing leggur áherslu á jafna möguleika allra starfsmanna á starfsþjálfun, sí- og endurmenntun. Kynin eiga t.d. að búa við sömu möguleika á stöðuhækkunum, stöðubreytingum og vinnuaðstöðu.
Árlega þarf að skoða skiptingu á öllum þeim þáttum sem flokkast geta til hlunninda með það fyrir augum að ekki sé verið að mismuna starfsfólki eftir kyni. Með hlunnindum er átt við t.d. aðgengi að vinnuaðstöðu eða tækjum til eigin nota, tölvutengingar heim til starfsmanna, bónusgreiðslur, farsímar, fartölvur eða annað sem flokkast getur til hlunninda og tekjuauka.
Áreitni og ofbeldi
Öllum starfsmönnum Olíudreifingar þarf að vera ljóst að kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni er alls ekki liðin. Hér er t.d. átt við kynferðislega hegðun sem er ósanngjörn og eða móðgandi og í óþökk þess sem fyrir henni verður. Áreitni eða ofbeldi sem beinist sérstaklega að öðru kyninu. Starfsmenn eiga alls ekki að sætta sig við kynferðislega áreitni, en áreitnin getur birst í mörgum myndum s.s. í orðum eða látbragði. Kynferðisleg áreitni hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess eða þeirra sem fyrir henni verða og henni er haldið áfram þrátt fyrir að tekið sé skýrt fram að hegðunin sé í óþökk þolanda. Stjórnendur verða að tryggja að starfsmenn verði ekki fyrir áreitni eða ofbeldi m.a. með því að senda út skýr skilaboð um að slík hegðun verði ekki liðin og á henni verði tekið. Stjórnendur bera ábyrgð á því að kynferðisleg áreitni, kynbundið ofbeldi eða kynbundin áreitni viðgengst ekki innan Olíudreifingar. Ef upp koma mál sem þessi fer meðferð þeirra í ákveðinn farveg. Stjórnendur nýta sér aðstoð fagaðila og bjóða bæði þolanda og geranda upp á utanaðkomandi aðstoð.
Verkaskipting - vinnuhópar og nefndir
Þegar starfsmönnum er skipt í vinnuhópa skal hafa það að leiðarljósi að samsetning hópa endurspegli kynjaskiptingu starfsmanna. Einnig þarf að hafa þessa skiptingu í huga þegar kosið eða valið er í embætti á vegum Olíudreifingar. Eins og fram kom í inngangi er kynjaskipting mjög ójöfn í fyrirtækinu. Sumpart vegna starfseminnar þar sem flest öll störf flokkast til hefðbundinna karlastarfa og hins vegar þess að færri konur hafa enn menntun til að sinna þessum störfum. Því er langt í land að hægt verði að jafna hlut kynjanna í vinnuhópum eða nefndum sem Olíudreifing á aðild að.
Viðhorfskannanir
Í reglubundnum viðhorfskönnunum þarf að greina allar niðurstöður eftir kyni ef unnt er. En sökum þess hve fáar konur vinna á flestum sviðum fyrirtækisins er ekki alltaf unnt að greina þau svör eftir kyni. Hér er hægt að nýta sér m.a. starfsmannasamtöl og ýmsar aðrar kannanir sem gerðar eru af Olíudreifingu og tengjast innra mati sem unnið er með í fyrirtækinu.
Þar er skoðað sérstaklega m.a:
- Almenn kjör
- Viðhorf til starfsins
- Vinnuálag-sveigjanlegur vinnutími
- Aðgengi að stjórnendum
- Ábyrgð í starfi
- Aðgang að aðstoð eða handleiðslu
- Aðbúnað-vinnuumhverfið, hæfir það báðum kynjum?
- Annað.
Samræming fjölskyldulífs og atvinnu
Allt starf í Olíudreifingu þarf að taka mið af því að samræma sem best fjölskyldulíf og atvinnu starfsmanna. Á almennum vinnumarkaði er mikið lagt upp úr því að vinnutími starfsmanna sé sveigjanlegur og það talið til kosta ef unnt er að vinna hluta starfsins heima. Flest störf innan Olíudreifingar lúta hinsvegar þeim lögmálum að erfitt er að koma þessu við en þó er gott að vera meðvitaður um sveigjanleika í starfi. Í anda jafnréttislaga eiga stjórnendur að leitast við að gera nauðsynlegar ráðstafanir þannig að starfsmenn, jafnt karlar sem konur, geti samræmt sem best starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu. Í anda samræmingar er vert að skoða og skrá sérstaklega fjarvistir starfsmanna frá vinnu vegna fjölskylduábyrgðar og athuga hvort hlutfallslegur munur sé á fjarvistum kynjanna.
Ábyrgð
Framkvæmdastjóri ber endanlega ábyrgð á jafnréttisáætlun Olíudreifingar ehf. Hinsvegar getur hann falið einstökum starfsmönnum að koma að því að semja hana og fylgja henni eftir. Líta má á jafnréttisáætlunina sem viljayfirlýsingu Olíudreifingar í jafnréttismálum. Framkvæmdastjóri þarf að undirrita áætlunina ásamt einum starfsmanni og fylgja henni eftir. Framkvæmdastjóri kynnir áætlunina síðan fyrir stjórn fyrirtækisins.